„Know Your Rights“ verkefnið styrkt af Erasmus+
Einurð leiðir verkefnið „Know Your Rights“ (KYR) sem styrkt er af Erasmus+ Menntaáætlun Evrópusambandsins. Verkefnið snýst um að útbúa fræðslu- og kynningarefni um réttindi verkafólks af erlendum uppruna, þjálfa jafningja í að upplýsa um slík réttindi og veita stuðning.