Re-Start á vinnumarkaði

Markmið RE-START verkefnisins er að byggja upp stuðningsþjónustu í gegnum netið fyrir konur sem vilja snúa aftur á vinnumarkað eftir að hafa verið heimavinnandi. Verkefnið snýr að 3 stærstu áskorunum kvenna sem eru í þessum stað í lífi sínu:

– fá hvatningu og öðlast sjálfstraust til að snúa aftur á vinnumarkað.

– fá stuðning um hvernig er best að bera sig að til að ná árangri og fá starf við hæfi.

– auka félagsfærni og færni til að koma auga og nýta skipulega þau tengsl- og tengslanet sem eru aðgengileg.

Stuðningsefni RE-START verkefnisins verður aðgengilegt á netinu fyrir konur sem vilja snúa aftur á vinnumarkað til að draga úr hættu á jaðarsetningu og fátækt, sérstaklega á efri árum. Þannig er verkefninu ætlað að hafa jákvæð áhrif á möguleika kvennanna á vinnumarkaði og stuðla að betri félagslegri og efnahagslegri stöðu þeirra og fjölskyldna þeirra.

Fræðslusíða verkefnisins er aðgengileg á ensku og tungumálum samstarfslandanna: Spánn, Ísland, Grikkland, Kýpur, Búlgaría og Póland,