EXTOR

Magdalena Falter er verkefnastjóri EXTOR verkefnisins fyrir hönd Einurðar, verkefnið er styrkt af Erasmus+. Í tengslum við verkefnið hefur verið staðið fyrir ýmis konar viðburðum. Upptökur af viðburðum og tilraunakennslu verða settar inn um leið og þær birtast.

Social Café: Gróska, í október 2024 – Sjálfbær og nærandi ferðaþjónusta

Viðburðurinn Tourism Networking Event: Sjálfbær og nærandi ferðaþjónusta á Íslandi hófst á stuttum fyrirlestrum þar sem hagaðilar og samstarfsaðilar frá Íslenska ferðaklasanum og Háskóla Íslands miðluðu þekkingu og innsýn í þróun sjálfbærrar og nærandi ferðaþjónustu á Íslandi, fyrirlesarar voru; Dr. Magdalena Falter, Ásta Krístín Sigurjónsdóttir, Ólöf Ýrr Atladóttir, Dr. Jessica Aquino, Ragnhildur Sigurðardóttir og Rannveig Ólafsdóttur prófessor. viðburðinum lauk með umræðum og tengslamyndun.

Social Café: Webinar, 30th of October 2024
Dr. Magdalena Falter kynnti nýjustu rannsóknir sínar, sem unnar eru í samstarfi við Gunnar Þór Jóhannesson, um gildi „rural hackathon“ til að efla nýsköpun og svæðisbundna þróun á Íslandi. Byggt var á Hacking Hekla verkefninu sem fór fram víða um land á árunum 2020–2023, sérstaklega var skoðað hvaða árangur slíkir viðburðir skila og hvað situr eftir í samfélögunum að þeim loknum.

Tourism Training Course (Tilraunakennsla, fór fram á ensku)

Hluti 1/3 Nýsköpun og ferðaþjónusta í dreifbýli:
Fyrsta vefnámskeiðið kynnti þátttakendur fyrir lykilhugmyndum upplifunartengdrar ferðaþjónustu og hlutverki hennar í sjálfbærri þróun dreifbýlis, þar sem fjallað var um helstu áskoranir eins og takmarkaða innviði, árstíðasveiflur og álag á náttúru, auk vaxandi eftirspurnar eftir ekta og merkingarbærri upplifun sem kallar á nýsköpun í ferðaþjónustu; jafnframt var lögð áhersla á samfélagsþróun, þátttöku og réttlæti, með dæmum úr framkvæmd, og þátttakendur hvattir til að hugsa gagnrýnið um jafnvægi vaxtar og umhverfisáhrifa og hlutverk sitt í átt að nærandi ferðaþjónustu sem skilar ávinningi til staða og samfélaga.

Hluti 2/3: Stafræn markaðssetning (Digital Marketing & Video Storytelling)
Annað vefnámskeiðið fjallaði um stafræna markaðssetningu og mikilvægi frásagnar (storytelling) í ferðaþjónustu í dreifbýli, þar sem rætt var um bæði tækifæri og áskoranir stafrænnar þróunar og spennuna milli tækninotkunar og mannlegra þátta. Lögð var áhersla á nauðsyn sterkrar netviðveru, notkun verkfæra eins og samfélagsmiðla og leitarvélabestunar, og mikilvægi þess að skapa trúverðugt og sjónrænt aðlaðandi efni sem endurspeglar raunverulegt líf, auk þess sem farið var í myndbandagerð og áhrifaríka frásögn til að tengjast áhorfendum og hvetja til þátttöku, með hagnýtum æfingum.

Hluti 3/3: Fjármögnun og stuðningsumhverfi (Funding and innovation support system)
Þriðja vefnámskeiðið fjallaði um fjármögnunartækifæri og þróun viðskiptahugmynda fyrir lítil og meðalstór ferðaþjónustufyrirtæki í dreifbýli, þar sem þátttakendur fengu yfirsýn yfir evrópska og norræna styrkjaumhverfið og leiðir til að nýta það til nýsköpunar og vaxtar, ásamt því að vinna með Business Model Canvas og Value Proposition Canvas til að skýra virðisboð, viðskiptavini og tekjulíkön og tryggja að þjónusta mæti raunverulegum þörfum markhópa; námskeiðinu lauk með hagnýtum leiðbeiningum um styrkumsóknir, þar sem lögð var áhersla á skýra framsetningu markmiða, frumleika og áhrifa.

Multi-Actor-Forum 1/3: Webinar with Arnar Sigurdsson:

Arnar Sigurðsson (East of Moon), sem hefur rannsakað ítarlega gangverk nýsköpunarvistkerfa í dreifbýli á Íslandi, nýtti lykilfyrirlestur sinn til að ögra hefðbundnum hugmyndum um nýsköpun og frumkvöðlastarf og sýna hvernig skilningur okkar á þessum hugtökum mótar stefnumótun, fjármögnun og viðhorf samfélagsins til nýsköpunar í dreifbýli.

 Multi-Actor-Forum 2/3: Webinar með Gunnari Ólafssyn

Gunnar Ólafsson (Djúpið) miðlaði innsýn úr tilraunaverkefni um gervigreind í ferðaþjónustu sem hann stóð fyrir í Blábankanum á Þingeyri í október 2025, þar sem lítil ferðaþjónustufyrirtæki könnuðu þekkingu sína og lærdómsþarfir tengdar gervigreind, og setti þessar niðurstöður í samhengi við stöðu og þróun gervigreindar í ferðaþjónustu á Vestfjörðum með áherslu á tækifæri, áskoranir og sjónarhorn smærri aðila

Multi-Actor-Forum 3/3: Kynning á hlaðvarpinu Ferdamál á Íslandi

Ferðaþjónusta á Íslandi er tiltölulega ung grein sem hefur oft verið gagnrýnd fyrir sundurleitni og viðbragðsdrifna þróun, þar sem ábyrgð og skipulag var lengi mjög dreift og því er brýnt að hagaðilar vinni betur saman með því að kynnast og miðla sín á milli gildum og sýn. Í þessu samhengi kynntu Gunnar Þór Jóhannesson, Magnús Haukur Ásgeirsson og Magdalena Falter tilraunaverkefnið Ferðamál á Íslandi, sem er hlaðvarp er nýtt til að gefa ólíkum röddum í greininni vettvang, miðla reynslu og fræðilegri þekkingu fyrir fagfólk, stefnumótendur og samfélagið í heild.