Stuðningur við samfélagslega nýsköpun – Lokamálþing og vinnustofa SE4Y

Miðvikudaginn 3. ágúst kl. 14-16 í Lóni fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðunnar

Málþingið er hluti af verkefninu ”Social entrepreneurship for youth – SE4Y” sem styrkt er af Erasmus+ menntaáætlun Evrópusambandsins og er skipulagt í samstarfi við Vaxandi-miðstöð um samfélagslega nýsköpun við Háskóla Íslands.

DAGSKRÁ

14:00    Opnunarávarp – Steinunn Hrafnsdóttir, prófessor og fulltrúi Vaxandi miðstöðvar um samfélagslega nýsköpun við Háskóla Íslands

14:15     Kynning á samfélagslega nýsköpunarverkefninu “Dagur í lífi stúlku með ADHD” – Sara, Stella og Katla nemendur í samvinnu og samfélagslegri nýsköpun í félagsráðgjöf og þátttakendur í  SE4Y þjálfun samfélagsfrumkvöðla í Litáen.   

14:35     Kynning á niðurstöðum SE4Y verkefnisins og stuðningsumhverfi samfélagslegrar nýsköpunar á Íslandi – Stefanía G. Kristinsdóttir verkefnisstjóri hjá Einurð.

15:00     Þátttakendur fá yfirlit yfir sjóðaumhverfi samfélagslegrar nýsköpunar og vinna hugmynd að umsókn.  Hvernig falla markmið sjóðsins að markmiðum verkefnisins?  Er verið að styðja við samfélagslega nýsköpun, hvaða mælikvarðar liggja til grundvallar við mat á umsóknum?

15:40     Kynningar og umræður meðal þátttakenda

15:50     Samantekt og léttar veitingar