„Know Your Rights“ verkefnið styrkt af Erasmus+

Einurð leiðir verkefnið „Know Your Rights“ (KYR) sem styrkt er af Erasmus+  Menntaáætlun Evrópusambandsins.  Verkefnið snýst um að útbúa fræðslu- og kynningarefni um réttindi verkafólks af erlendum uppruna, þjálfa jafningja í að upplýsa um slík réttindi og veita stuðning.  Framleidd verða video á 3-5 tungumálum í hverju landi auk fræðslu- og kynningarefnis sem hægt verður að nálgast á upplýsingasíðu verkefnsins við lok þess.

Samstarfsaðilar í verkefninu eru:  Verein Multikulturell (VM) frá Austurríki, Centre for Social Innovation (CSI) frá Kýpur, Jafnréttishús, Social Innovation Fund (SIF) frá Litháen, Acción Laboral (AL) og Asociación Caminos (AC) frá Spáni. Sjá mynd af hópnum.

Upphafsfundur verkefnisins var haldinn í Gerðubergi 8. nóvember síðastliðinn þar sem samstarfsaðilar fóru yfir skipulag og verkáætlun auk þess sem SIF kynnti  heimasíðu þess.

Erasmuslogo